Verkefni
Vefleiðangur til London er ætlaður fyrir nemendur í tölvuáföngum.
Með því að fara í gegnum hann eiga þeir að læra að leita á vefnum að því sem þeir óska eftir.
Nemendur vinna verkefnið hver fyrir sig og ímynda sér að þeir séu að fara í ferð til London.
Þar ætla þeir að dvelja þar í nokkra daga.
Þeir eiga að leita að tveggjamanna herbergi á ódýru hóteli.
Það á að vera staðsett nálægt neðanjarðarbrautarstöð.
Þeir eiga að fara á Google maps og finna mynd af hótelinu.
Flogið er með Flugleiðum beint til Heathrow-flugvallar. Þaðan er tekin lest til Paddington Station.
Ef flogið er með WowAir er lent á Gatwick-flugvelli. Þaðan er lest til Victoria Station.
Finnið einn atburð sem gerist á þessu tímabili (t.d. íþróttaviðburð, tónleika, leikhús, skemmtigarð) sem þið gætuð hugsað ykkur að fara á. Finnið kostnaðinn.
Kannið hvaða söngleiki er verið að sýna í London á þeim tíma sem dvalið er þar; einnig tíma og verð og hvort hægt sé að panta í gegnum vefinn og greiða með greiðslukorti.
Þeir, sem áhuga hafa á að fara á fótboltaleik meðan á dvölinni stendur, athugi hvort, hvenær og hvar og hvaða lið verða að keppa. Ef leikurinn er ekki í London (t.d. í Liverpool eða Manchester), á að finna út hvernig hægt er að komast til staðarins með lest.
Hvað tekur langan tíma að ferðast þangað?
Nemendur kanni möguleika á að fara í kynnisferð um borgina.
Þeir athugi verð, tíma og ferðatilhögun og taka fram hvaða staðir verða skoðaðir í ferðinni.
Finnið einn áhugaverðan stað sem ykkur langar að skoða. Finnið mynd af honum.
Setjið allan kostnaðinn upp í Excel og leggið hann saman til að sjá hvað ferðin kostar.
Búið til súlurit yfir kostnaðinn.
Setjið öll svörin í Word-skjal og takið súluritið úr Excel og færið það yfir í Word-skjalið með tengingu á milli forritanna. Afritið líka töfluna yfir í Word.
Nemendur kynni sér helstu verslanir og útimarkaði í London.
Nemendur finni helstu söfn í London. Þeir velja eitt af þeim og skrifa stutta lýsingu á safninu (málverk, höggmyndir, fornleifar).